Staðsetning:
Vífilsstaðavatn er í Garðabæ, austan við Vífilsstaði.
Upplýsingar um vatnið:
Vatnið er í 38 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 0,27 km2 að flatarmáli. Það er mjög vinsælt meðal veiðimanna og þykir mörgum ómissandi að fara þangað á vorin til að fá fyrstu tökur ársins, en einnig til að fara yfir veiðibúnaðinn fyrir sumarið. Þess má geta, að Vífilsstaðavatn er tilvalið til að æfa fluguköst.
Veiðisvæðið:
ATHUGIÐ AÐ BANNAÐ ER AÐ VEIÐA Á MERKTU SVÆÐI NORÐANMEGIN Í VATNINU vegna verndunar Flórgoðans. – Sjá kort. Að því frátöldu er heimilt að veiða í öllu vatninu. Best er að veiða sunnanmegin í vatninu, en einnig undir hlíðinni að norðaustanverðu.
Gisting:
Ekki er heimilt að tjalda við vatnið.
Veiði:
Í vatninu fæst einkum urriði og bleikja. Mest er um smábleikju, en einnig veiðist töluvert af stærri fiski, yfirleitt 1-2 pund. Fiskurinn úr vatninu er mjög góður matfiskur.
Daglegur veiðitími:
Leyfilegt er að veiða frá kl. 8 til kl. 24.
Tímabil:
Veiðitímabilið hefst 1. apríl og lýkur því 15. september.
Hægt er að sækja um leyfi til dorgveiði á ís. Dagsveiðileyfi er hægt að kaupa í Þjónustuveri Garðabæjar á Garðatorgi 7 á kr. 1.000.-
Agn:
Aðeins er heimilt að nota flugur, maðk og spón. Öll önnur beita og smurefni stranglega bönnuð í vatninu.
Besti veiðitíminn:
Jafnan veiðist best á vorin, í maí og júní.
Reglur:
Vífilsstaðavatn var friðlýst þann 2. nóvember 2007 sem friðland. Vatnið er í eigu og umsjón Garðabæjar og nýtur ákvæða laga um friðýsingar sbr. lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og fylgja leiðbeiningum á skiltum friðlandsins. Hundar skulu vera í bandi í friðlandinu og notkun báta, beljubáta og kayjaka er óheimil. Sýna þarf Veiðikortið og persónuskilríki þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Algjört hundabann er í friðlandi Vífilsstaðavatns frá 15. apríl til 1. júlí. Ítrekum óskir til veiðimanna að ganga vel um friðlandið og alls ekki henda girni, krókum né rusli á jörðina þar sem það er stórhættulegt fuglalífinu.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Linda Björk Jóhannsdóttir, GSM: 820-8574
{pgsimple id=29|caption=0|tsize=medium|tmax=20|imax=200|close=1}
{weather 111}
0 Comments