Það var gaman að koma að Vífillsstaðavatnið rétt fyrir kl. 9 í morgun. Veðrið var frábært, 7° hiti, og margt um manninn á bökkum vatnsins og margir að setja í fiska. Atli Sigurðsson var mættur um hálf átta og var á ljúka veiðum með 4 bleikjur í farteskinu sem elda átti í hádeginu. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í morgun 1. apríl 2007 fyrir kl. 9.00.
Við bíðum eftir fréttur úr hinum vötnunum sem opnuðu í morgun, en væntanlega eru einhverjir sem hafa lagt leið sína í Hraunsfjörðinn.
Veiðimaður með hann á!
Frábært veður og kjöraðstæður.
Atli Sigurðsson með 4 bleikjur sem hann fékk á grænt afbrigði af mýflugnapúpu.
Þessi ágæti veiðimaður var að landa fiski sem hann sleppti þegar ljósmyndara bar á svæðið.
Með kveðju,
Veiðikortið
0 Comments