Staðsetning:
Hnit: 65° 18.564'N, 14° 26.178'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá morgni til kvölds.
Veiðitímabil
Allt árið um kring
Urriðavatn - Austuland
Urriðavatn er í nágrenni við Egilsstaði
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er í 664 km. fjarlægð frá Reykjavík og 5 km. frá Egilsstöðum. Þjóðvegir 1 og 925 liggja við vatnið. Greiðfært er fyrir alla bíla að vatninu.
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er u.þ.b. 1,1 km² að flatarmáli. Mest dýpt er um 15 m. og stendur vatnið í um 40 m. hæð yfir sjávarmáli. Hafralónslækur og Merkilækur renna í Urriðavatn, en þaðan er útfall Urriðavatnslækjar.
Veiðisvæðið
Veiða má í öllu vatninu. Helstu veiðistaðir eru við ósa Hafralækjar og Urriðavatnslækjar, en einnig við hitaveitutanka og víðar.
Gisting
Hægt er að kaupa tjaldstæði hjá Skipalæk sem er skammt frá Lagarfjóti. Ekki er heimilt að tjalda við vatnið.
Veiði
Í vatninu er eingöngu bleikju að finna. Uppistaðan er 1 punda bleikja, en þó slæðast með stærri fiskar.
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn
Fyrst á vorin, þegar ísa leysir. Mest veiðist í stillu
Annað
Gott berjaland er í nágrenni við Urriðavatns auk þess sem Vök baðhús er við vatnið.
Reglur
Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Veiðikorthafar þurfa að skrá sig á bænum Urriðavatni og sýna nauðsynleg skilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðivörður
Jón Steinar Benjamínsson, Urriðavatni, s: 471-2060