Staðsetning:
Hnit: 66° 7.786'N, 23° 14.900'W

Daglegur veiðitími
Heimilt að veiða frá kl. 7:00 til kl. 22:00

Veiðitímabil
Frá 1. júní til 20. september

Syðridalsvatn - Vesturland

Syðridalsvatn er í Bolungavík við Ísafjarðardjúp.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Leiðin til Bolungavíkur er um 470 km. ef ekið er um Arnkötludal, á bundnu slitlagi frá Reykjavík.  Þaðan eru aðeins nokkrir km. til vatnsins.

Upplýsingar um vatnið

Hér er um mjög gott veiðivatn að ræða. Það er um 1 km2 að stærð og liggur um þrjá metra fyrir ofan sjávarmál. Þangað gengur mikið af sjógengnum fiski, s.s. sjóbleikju, sjóbirtingi og laxi.  Aðal veiðisvæðið er við ósa ánna, sem renna í vatnið.  Á Miðdalsodda og Geirastaðaodda er æðarvarp.  Veiðimenn eru beðnir um að taka tillit til þes og fara ekki þar um frá maíbyrjun og til júníloka.

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt stök leyfi í ýmis vötn

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiði er heimil í öllu vatninu og meðfylgjandi not eru af nærliggjandi ám, Gilsá og Fossá frá 1. apríl tli 20. ágúst.  Ekki má veiða í Ósá, sem rennur úr vatninu, og ekki nær henni en sem nemur merkjum i í Grjótnesi og Vatnsnesi. Hægt er að kaupa sérstaklega veiðileyfi i Ósa fyrir þá sem vilja veiða í henni.  Veiðileyfin í Ósa fást hjá veiditorg.is.

Gisting

Í Bolungarvíkurkaupstað er fyrirtaks tjaldsvæði og gistiheimili, sundlaug og ýmis afþreying í boði.

Veiði

Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og stöku lax. Einnig má stunda dorgveiði þegar ís er á vatninu , en aðeins í fullu samráði við veiðivörð.

Agn

Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn

Júlí og ágúst.

Reglur

Lausaganga hunda er stranglega bönnuð.  Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Arnþóri Jónssyni á Geirastöðum.  Veiðibókin er í kassa við tröppurnar á Geirastöðum.  Þar skal skrá einnig skrá veiði dagsins.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Veiðiumsjón

Arnþór Jónsson, Geirastöðum, S: 456-7118 eða GSM: 897-7370