Staðsetning:
Hnit: 65° 15.826'N, 15° 30.987'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Veiðitímabil
Hefst 1. maí og lýkur 30. september.
Sænautavatn - Austuland
Sænautavatn er á Jökuldalsheiði, við Sænautasel.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er um 600 km. frá Reykjavík, 74 km. frá Egilsstöðum 13 km, frá þjóðvegi eitt.
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er með djúpan skurð í miðju, dýpst 24 m. Úr vatninu rennur Lónskvísl, sem fellur í Hofsá í Vopnafirði.
Veiðisvæðið
Veiða er heimil í öllu vatninu.
Gisting
Hægt er að kaupa aðgang að tjaldstæði. Einnig er hægt er að kaupa gistingu á Skjöldóflsstöðum (um 20 km.) eða á Aðalbóli, sem er efsti bærinn í Hrafnkelsdal.
Veiði
Mikla bleikju er að finna í vatninu, bæði smáa og stærri fiska. Það grynnkar mjög til jaðrana og veiðist oft vel þar sem grynning og dýpi mætast. Um lágnættið er oft sérstaklega farsæl veiði.
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn
Jöfn veiði er yfir veiðitímann, þó yfirleitt meiri í maí og júní.
Reglur
Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Korthafar skulu skrá sig í Sænautaseli og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Annað
Hægt er að kaupa veitingar á Sænautaseli t.d. kaffi og lummur. Með fyrirvara er hægt að fá mat keyptan.
Veiðivörður
Lilja Óladóttir, Sænautaseli. Sími: 892-8956 eða 853-6491.