Staðsetning:
Hnit: 63° 55.557'N, 21° 59.574'W
Daglegur veiðitími
Heimilt að veiða allan sólarhringinn
Veiðitímabil
Hefst 15. apríl og lýkur 30. september.
Kleifarvatn á Reykjanesi - Suðurland
Kleifarvatn er á Reykjanesskaga, staðsett á milli Sveifluhálsar og Vatnshlíðar.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Fjarlægð er um 34 km. frá Reykjavík. Auðvelt er að komast að vatninu, en aka þarf Krísuvíkuleið og liggur vatnið meðfram þjóðveginum.
Upplýsingar um vatnið
Kleifarvatn er eitt af stærstu vötnum landsins, um 8 km2. að stærð og 136 m. yfir sjávarmáli. Mesta dýpi í vatninu er um 90 m. á móts við Syðri Stapa. Meðaldýpi í vatninu er um 29 m. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar fer fyrir veiðiréttinum í vatninu. Kleifarvatn er frægt fyrir stórfiska og mælingar sýna mikið af fiski í vatninu, einnig hafa kafarar séð mikið af vænum fiski þar. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur hafið ræktunarátak í vatninu og sumarið 2006 var sleppt um 10.000 ársgömlum urriðaseiðum í vatnið. Sleppingum verður haldið áfram næstu ár auk þess sem slóðar í kringum vatnið hafa verið lagfærðir.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.
Veiðisvæðið
Veiði er heimil í öllu vatninu.
Gisting
Engin gistiaðstaða er við vatnið.
Veiði
Í vatninu er bæði bleikja og urriði.
Agn
Fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn
Veiði er nokkuð jöfn yfir daginn.
Reglur
Handhöfum Veiðikortsins ber að vera með kortið og skilríki á sér og tilbúnir að sýna það veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Óskað er eftir að því að menn sendi upplýsingar um afla með tölvupósti á netfangið veidikortid@veidikortid.is. Bátaumferð á vatninu er bönnuð.
Veiðivörður
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar fer með veiðieftirlit.