Staðsetning:
Hnit: 64° 55.257'N, 22° 54.738'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 7:00 til 24:00.
Veiðitímabil
Hefst þegar ýsa leysir og lýkur 30. september.
Hraunfjarðarvatn - Vesturland
Hraunsfjarðarvatn er á Snæfellsnesi.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er um 160 km. frá Reykjavík, um 15 km. í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka nær alveg upp að vatninu á vegarslóða frá Baulárvallarvatni, en síðasta spölinn þarf að fara fótgangandi (15 mín). Slóði þessi er einungis fær fjórhjóladrifnum bílum.
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er um 2,5 km2 að stærð og 84 metra djúpt, þar sem það er dýpst. Vatnið er í um 207 m. yfir sjávarmáli. Þaðan rennur Vatnaá í Baulárvallarvatn.
Veiðisvæðið
Veiða má í öllu vatninu.
Gisting
Tjalda má endurgjaldslaust við vatnið, en hvorki er þar um skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu að ræða.
Veiði
Jafnan er veiði góð í vatninu. Einungis urriði er í vatninu, sem gjarnan er vænn. Meðalþyngd fiska er 2-3 pund, en algengt er, að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum..
Agn
Allt löglegt agn: fluga, maðkur og spónn. Fiskur getur legið djúpt og þá þarf að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði. Í ljósaskiptunum ferðast urriðinn inn á grunnið við landið og er þá gott að nota flugu.
Besti veiðitíminn
Góð veiði er allt sumarið. Yfirleitt er best að veiða í ljósaskiptunum.
Annað
Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.
Reglur
Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um svæðið. Korthafar þurfa að hafa Veiðikortið og persónuskilríki við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.