Staðsetning:
Hnit: 65° 14.285'N, 21° 22.198'W
Daglegur veiðitími
Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn.
Veiðitímabil
Heimilt að veiða allt árið um kring.
Hólmavatn í Dölum - Vesturland
Hólmavatn er á Hólmavatnsheiði í Dölum.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er um 180 km frá Reykjavík, eða um 30 km frá Búðardal. Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdal á þjóðvegi 59 og ekið áleiðis 24,8 km að bænum Sólheimum þar sem veiðimenn skrá sig. Þaðan er um 5 km vegur upp á heiði, en hann er ekki greiðfær fólksbílum, þó að hægt sé að aka þar á vel útbúnum og háum fjórhjóladrifsbílum. Jepplingar og jeppar hentar þar að sjálfsögðu best.
Upplýsingar um vatnið
Hólmavatn er um 1 km2 að stærð og í um 190 m hæð yfir sjávarmáli.
Veiðisvæðið
Veiða má í öllu vatninu fyrir landi Sólheima.
Veiða má fyrir landi Sólheima, eða frá útfalli austur fyrir vatnið og norður að þeim punkti þar sem Reiðgötuvatn liggur að vatninu – sjá bláa línu á korti. Veiði í Gullhamarsvatni og Selvötnum fylgja með. Gullhamarsvatn er fyrir norðan Hólmavatn og fyrir austan Gullhamar sem er við vatnið. Selvötnin eru fyrir austan Hólmavatn og austan Selhólana en Sellækurinn rennur á milli Hólmavatns og Selvatnna. Þessi vötn eru í stuttu göngufæri frá Hólmavatni.
Gisting
Veiði
Góð veiði er í vatninu. Bæði má finna urriða og bleikju í vatninu, þó að bleikjan sé á undanhaldi. Montana Green er fluga sem reynst hefur sérstaklega vel í vatninu auk þess sem klassískar púpur gefa þar vel.
Áhugavert er fyrir barnafólk að kíkja í Selvötnin en þar er mikið af fiski þrátt fyrir að hann sé ekki endilega stór. Veiðimenn í ævintýraleit geta einnig kíkt í Gullhamarsvatn sem fylgir með .
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Stranglega bannað er að leggja net.
Besti veiðitíminn
Reglur
Aðeins er heimilt að koma til veiða á milli 7:00 og 22:00.
Öll umferð á mótorhjólum / fjórhjólum er bönnuð nema í samráði við veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Hundar eru aðeins leyfðir á svæðinu í samráði við veiðivörð.
Veiðivörður
Daði Einarsson á Sólheimum. S: 863-7702