Staðsetning:
Hnit: 65° 3.348'N, 21° 38.807'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá morgni til kvölds
Veiðitímabil
Hefst 1. maí og lýkur 30. september.
Haukadalsvatn - Vesturland
Haukadalsvatn er í Haukadal, skammt frá Búðardal.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Ekið er um Bröttubrekku og þaðan upp þjóðveg 587, rétt áður en komið er að Haukadalsá. Fjarlægð frá Reykjavík er um 140 km., eftir þessari leið. Búðardalur er í næsta nágrenni.
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er í 37 m. hæð yfir sjávarmáli og er mesta dýpi um 40 m. Stærð vatnsins er 3,2 km2. Besta veiðin fæst jafnan þar, sem lækir renna í vatnið.
Veiðisvæðið
Aðeins er heimilt að veiða í landi Vatns. Ekki má veiði innan við 100 metra frá ós. Veiðisvæðið nær þaðan og allt að gilinu. Veiðimörk eru merkt.
Gisting
Handhafar Veiðikortsins geta tjaldað endurgjaldslaust við vatnið í samráði við landeiganda og á eigin ábyrgð.
Veiði
Í vatninu er mest um sjóbleikju, sem gengur upp í gegnum Haukadalsá. Töluvert af laxi gengur upp í vatnið, en hann veiðist jafnan ekki á stöng.
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn
Haukadalsvatn er síðsumarsvatn og því er besti veiðitíminn frá miðjum júlí og fram í septemberlok.
Annað
Í Haukadal eru söguslóðir Eiríks rauða, föður Leifs heppna.
Reglur
Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Korthafa eiga að skrá sig hjá landeigenda, Sigurði Jökulssyni að Vatni, og jafnframt sýna Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðieftirlit
Sigurður Jökulsson að Vatni, s; 434-1350 eða 661-0434.