Staðsetning:
Hnit: 64° 59.212'N, 14° 36.870'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 10:00 til 22:00.
Veiðitímabil
Hefst 1. maí og lýkur 30. september.
Haugatjarnir - Austuland
Haugatjarnir eru í Skriðdal
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Frá Reykjavík eru um 650 km. og um 35 km. til Egilsstaða. Tjarnirnar eru við bæinn Hauga sem stendur við þjóðveg 95.
Upplýsingar um vatnið
Um er að ræða tvær tjarnir, sem eru mjög hentugar fyrir fjölskyldur. Þær eru ekki stórar en mjög aðgengilegar. Þar er mikið af fiski og því sérstaklega skemmtilegar fyrir ungu kynslóðina. Mikið og gott berjaland er í nágrenninu
Veiðisvæðið
Veiði er heimil í báðum tjörnunum.
Gisting
Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu.
Veiði
Einungis urriði veiðist í tjörnunum.
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn
Góð veiði er allt sumarið.
Annað
Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.
Reglur
Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Hugrúnu Sveinsdóttur á Haugum. Börn yngri en 14 ára veiða frítt.
Veiðivörður
Hugrún Sveinsdóttir, Haugum, s: 892-7813