Staðsetning:
Hnit: 64° 5,365’N, 21° 45,688’W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 7:00 til 24:00.
Veiðitímabil
Hefst á sumardaginn fyrsta ár hvert og lýkur því 15. september.
Elliðavatn - Suðurland
Elliðavatn er í Heiðmörk, útivistarsvæði í útjaðri Reykjavíkur og Kópavogs og er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið tilheyrir bæði Reykjavík og Kópavogi. Hægt er að komast að vatninu með því að fara Heiðmerkurafleggjarann og í gegnum Kópavog til að komast að Vatnsendalandi. Til að komast í Hólmsá má beygja til norðurs rétt austan við Heiðmerkurafleggjarann í áttina að Gunnarshólma.
Einnig má komast að ánni með því að beygja til norðurs nokkru austan við Gunnarshólma, eða leggja við brúna yfir hana á Suðurlandsvegi og ganga þaðan upp eða niður með ánni.
Verndunarátak
Í vatnakerfi Elliðavatns er verndunarátak í gangi fyrir laxastofninn og því beintum við þeim tilmælum til veiðimanna að sleppa veiddum laxi er kann að veiðast á vatnasvæðinu, sé það mögulegt.
Upplýsingar um vatnið
Elliðavatn er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult.
Vatnið er í um 73m. hæð yfir sjávarmáli og er um 1,8 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi er rúmir 2 m. en meðaldýpi er um 1 m.
Í vatnið renna Bugða og Suðurá. Hólmsá heitir áin nokkru ofar, áður en hún skiptist í Bugðu og Suðurá.
Hólmsá
Aðeins er leyfilegt að veiða með flugu í Hólmsá og að skylt er að sleppa öllum fiski!
ATH að bannað er að veiða í Suðuránni sem rennur út í Helluvatn.
Veiðisvæðið
Veiðisvæðið er Elliðavatn fyrir löndum Elliðavatns og Vatnsenda, auk Hólmsár og Nátthagavatns, þaðan sem Hólmsá rennur. Óheimilt er að veiða í Suðurá. Ekki má veiða nær Elliðavatnsstíflu en 50 metra.
Gisting
Hægt er að kaupa gistingu og veitingar á Kríunesi í Vatnsendalandi og á Gunnarshólma við Hólmsá. Engin skipulögð tjaldstæði eru á svæðinu enda er stutt í þá þjónustu í Reykjavík.
Veiði
Í vatninu eru bleikja, urriði, lax og stöku sjóbirtingur. Bleikjan var ríkjandi í vatninu en síðasta áratug hefur urriðinn sótt í sig veðrið og er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Lax og sjóbirtingur ganga í vatnið úr Elliðaánum og upp í Hólmsá. Urriðinn í vatninu hefur verið að stækka og síðasta sumar veiddust þar allt upp í sex punda urriðar. Veiðimenn eru beðnir um að skila inn veiðiskýrslu með því að smella hér.
Agn
Veiði með flugu, ormum og spún eru leyfð, en í Hólmsá má aðeins veiða á flugu! Önnur beita er óheimil. Nefna má margar góðar flugur en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Tailor, Mobutu, Peter Ross, Peacock, Watson‘s Fancy, svo að einhverjar séu nefndar. Þegar líður á sumarið og fiskurinn tekur að vaka eru þurrflugur góður kostur. Einnig er gott að nota litlar straumflugur fyrir urriðann, eins og t.d. Black Ghost, Mickey Finn, rauðgulan Nobbler, Dentist o.fl.
Besti veiðitíminn
Jöfn veiði er í vatninu. Vatnið er þó sérstaklega vinsælt í maí. Mjög góð veiði er yfirleitt í maí, júní og júlí.
Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin og fyrripart dags.
Vandaður bæklingur um veiðar í Elliðavatni sem Geir Thorsteinsson hefur gefið út á rafrænu formi
Skoða bæklingReglur
Stangaveiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir sig rusl. Jafnframt eru gestir vinsamlegast beðnir um að hirða upp rusl sem á vegi þeirra verður. Vilji menn gera að aflanum við vatnið eru þeir beðnir um að taka með sér slor og hausa.
Óheimilt er að aka utan vega. Öll umferð báta á vatninu er bönnuð nema með leyfi landeigenda. Bent er á bátaleigu á Kríunesi í landi Vatnsenda. Veiðimenn skulu ekki fara inn á sumarbústaðalóðir við vatnið og virða þriggja metra reglu frá vatnsbakka þar sem það getur átt við.
Vegna rannsókna á urriða á vatnasvæðinu eru veiðimenn beðnir að athuga hvort veiddir urriðar séu mælimerktir. Merkin eru fest á baki urriðans og geta verið einföld slöngumerki eða rafeindamerki. Merkjum ber að skila til Laxfiska ehf.
Í Hólmsá má aðeins veiða á flugu!
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum
Veiðikortshöfum ber að sýna veiðiverði Veiðikortið og skilríki þegar þess er óskað. Þegar handhafi Veiðikortsins er á bíl er hann beðinn um að hafa Veiðikortið sýnilegt við framrúðu bílsins.