Veiðikortið 2027 kemur út á næstu dögum og því hægt að lauma því í jólapakka landsmanna.
Með Veiðikortinu má veiða í 37 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins kr. 10.900.- og rétt er að benda á að mörg stéttarfélög niðurgreiða kortið til sinna félagsmanna.
Litlar breytingar verða á vatnasvæðum á milli ára en Blautulón upp á hálendi detta út.
Rafræna Veiðikortið 2027 er nú þegar komið i sölu og hægt að kaupa hér rafrænt eða sem gamla góða plastkortið og fá það sent heim án aukakostnaðar í byrjun desember.
Veiðikortið er frábær jólagjöf fyrir veiðimenn sem eiga allt!

Veiðikortið 2027 er komið í rafræna sölu!
Veiðikortið 2027 er nú fáanlegt á rafrænu formi í vefverslun okkar. Hefðbundna plastkortið ásamt bæklingi er væntanlegt úr prentun og í dreifingu í fyrstu viku desembermánaðar.

Gefðu veiðigleði með gjafakorti
Við minnum einnig á gjafakort Veiðikortsins – tilvalda gjöf fyrir veiðiáhugafólk. Viðtakandi velur sjálfur hvort hann nýtir gjafakortið fyrir rafrænt Veiðikort eða hefðbundið plastkort.
Þú getur sent gjafakortið til þín og prentað það út eða látið senda það beint til viðtakanda í tölvupósti á þeim degi og tíma sem þú velur. Þannig er auðvelt að gleðja einhvern með veiði næsta sumars, hvort sem tilefnið er jól, afmæli eða önnur hátíðleg stund.
Skoðaðu Veiðikortið 2027 og gjafakortin í vefverslun okkar.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
