Veiðikortið 2020 er farið í prentun og verður klárt í jólapakka veiðimanna í tíma en við vonumst til að geta byrjað að dreifa fyrstu kortunum öðru hvoru megin við næstu helgi.
Veiðimenn geta strax farið að hlakka til næsta sumars með Veiðikortið upp á vasann enda geta þeir veitt í 34 vatnasvæðum vítt og breitt um landið líkt og undanfarin ár.
Þeir sem panta kortið á vefnum fá það sent um leið og það verður klárt til afgreiðslu.
Óbreytt verð er á milli ára og kostar kortið kr. 7.900.-
Hér fyrir ofan má sjá forsíðu fylgiritsins fyrir 2020 en hún er tekin við Elliðavatn.
Hér fyrir neðan er listinn yfir vötnin sem verða í Veiðikortinu 2020.
1 | Arnarvatn á Melrakkasléttu |
2 | Baulárvallavatn á Snæfellsnesi |
3 | Berufjarðarvatn í Reykhólahreppi |
4 | Elliðavatn |
5 | Gíslholtsvatn |
6 | Haugatjarnir í Skriðdal |
7 | Haukadalsvatn í Haukadal |
8 | Hlíðarvatn í Hnappadal – NÝTT |
9 | Hólmavatn í Dölum |
10 | Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu |
11 | Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi |
12 | Hraunsfjörður á Snæfellsnesi |
13 | Hreðavatn í Borgarbyggð |
14 | Kleifarvatn á Reykjanesskaga |
15 | Kleifarvatn í Breiðdal |
16 | Langavatn í Borgarbyggð |
17 | Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu |
18 | Meðalfellsvatn í Kjós |
19 | Mjóavatn í Breiðdal |
20 | Sauðlauksdalsvatn við Patreksfjörð |
21 | Skriðuvatn í Suðurdal |
22 | Sléttuhlíðarvatn í Skagafirði |
23 | Svínavatn í Húnavatnssýslu |
24 | Syðridalsvatn við Bolungarvík |
25 | Sænautavatn á Jökuldalsheiði |
26 | Urriðavatn við Egilsstaði |
27 | Úlfljótsvatn – vesturbakkinn |
28 | Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði |
29 | Vestmannsvatn í Suður-Þingeyjarsýslu |
30 | Vífilsstaðavatn í Garðabæ |
31 | Þingvallavatn – þjóðgarður |
32 | Þveit við Hornafjörð |
33 | Æðarvatn á Melrakkasléttu |
34 | Ölvesvatn – vatnasvæði Selár |
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments