Árlegur urriðadans undir leiðsögn Jóhannesar Sturlaugssonar verður laugardaginn 4. október klukkan 14:00. Allajafna stendur viðburðurinn yfir í 90-120 mínútur.
Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum mun fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um urriðann í Þingvallavatni, lífshætti hans og almennan hag.
Kynningin hefst við bílastæði P5 þar sem Valhöll áður stóð. Þaðan er gengið meðfram ánni upp undir Drekkingarhyl. Þar verða risaurriðar og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra.
Gestir fá tækifæri til að sjá urriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.
Jóhannes hefur haldið utan um vöktun á urriðanum í Þingvallavatni og aðra laxfiska víða um landið. Það er af nógum efnivið að taka enda er urriðinn og umhverfi hans að þróast hratt á þessum árum.
Þetta er viðburður sem þú hreinlega mátt ekki missa af!
