Staðsetning:
Skriðuvatn er efst í Skriðdal í S-Múlasýslu.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá næstu bæjarfélögum:
Vatnið er í 35 km. fjarlægð frá Egilsstöðum, 50 km. frá Breiðdalsvík og 50 km. frá Djúpavogi um Öxi. Vegalengdin frá Reykjavík er um 595 km.
Upplýsingar um vatnasvæðið:
Skriðuvatn er um 1,25 km2 að flatarmáli og er um 10 m. Vatnið er í 155 m. hæð yfir sjávarmáli. Í vatnið renna Öxará, Forvaðará og Vatnsdalsá og úr Skriðuvatni fellur Múlaá.
Veiðisvæðið:
Vatnasvæðið, sem um ræðir, er Skriðuvatn að austanverðu í landi Vatnsskóga. Það er svæðið þar sem Skriðuvatn fellur í Múlaá og öll strandlengja vatnsins að austan, allt að Öxará. Einnig er veiðiréttur í austanverðri Múlaá, frá upptökum árinnar, og 250 metra niður ána allt að merktum landamerkjastólpa. Einnig er heimilt að veiða í Öxará að austanverðu þar sem áin fellur í Skriðuvatn og upp eftir ánni. Ákjósanlegt er að stunda veiðar með flugu í lóni sem fellur úr vatninu og í Múlaá.
Gisting:
Veiðikortshafi hefur heimild til að tjalda endurgjaldslaust í landi Vatnsskóga, enda gangi hann snyrtilega um land og gróður. Þar er þó hvorki að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu. Einnig er hægt að kaupa gistingu á Egilsstöðum, Breiðdalsvík og Djúpavogi.
Veiði:
Skriðuvatn er urriðavatn en einnig veiðist þar bleikja. Stangaveiði er eingöngu heimil frá bökkum og öll netaveiði er bönnuð.
Daglegur veiðitími:
Leyfilegt er að veiða á milli kl. 8.00 til kl. 22.00.
Tímabil:
Veiði er heimil frá 1. júní til 31. ágúst.
Agn:
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn:
Jöfn veiði allt tímabilið.
Reglur:
Handhafar Veiðikortsins geta farið beint til veiða, en verða að hafa Veiðikortið við höndina til að sýna veiðiverði, þegar hann vitjar veiðimanna. Eitt barn undir fermingu veiðir frítt – greiði fullorðinn veiðileyfi eða sýni Veiðikortið.
Veiðivörður / umsjónarmaður:
Ívar Björgvinsson, Vatnsskógum í Skriðdal.
{pgsimple id=19|caption=0|tsize=medium|tmax=20|imax=200|close=1}
{weather 7}
0 Comments