Staðsetning:
Meðalfellsvatn er í Kjósarhreppi.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík:
Um 50 km. akstur er frá Reykjavík. Keyrt er inn í Hvalfjörð rétt áður en komið er að Hvalfjarðargöngum. Síðan er beygt til hægri og ekið frá Hvalfirði um veg nr. 461 sem liggur að vatninu.
Upplýsingar um vatnið:
Vatnið er um 2 km2 að stærð og um 18 m. djúpt þar sem það er dýpst. Vatnið stendur í 46 metra hæð yfir sjávarmáli. Í vatnið renna Sandsá og Flekkudalsá en úr því fellur Bugsa sem rennur í Laxá í Kjós. Lax og sjóbirtingur gengur úr Laxá í gegnum Bugðu og í vatnið.
Veiðisvæðið:
Heimilt er að veiða í öllu vatninu. Bannað er þó að veiða nær ósum en 50 metra. Athugið að veiðisvæðið við upptök Bugðu er vaktað og séu veiðarfæri nær ós en 50 metrum mega menn búast við fjársektum og upptöku veiðarfæra.
Gisting:
Hægt er að kaupa gistingu í nágrenninu. Má þar nefna Ferðaþjónustuna Hjalla og Eyrarkort.
Veiði:
Mest veiðist af smábleikju, en einnig nokkur urriði, sjóbirtÍngur og lax. Urriðinn veiðist best fyrrihluta sumars. Lax gengur oft hratt upp í vatn og hafa menn veitt grálúsuga laxa upp í vatni þannig að mögulegt er að veiða lax frá miðju sumri og út veiðitímabilið. Þar sem mikið er af smábleikju í vatninu hentar það mjög vel fyrir ungviðið.
Daglegur veiðitími:
Veiðitími hefst kl. 7.00 og honum lýkur kl. 22.00
Tímabil:
Frá byrjun 19. apríl og fram til 20. september.
Agn:
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Besti veiðitíminn:
Frá miðjum júní og fram í miðjan ágúst.
Annað:
Mjög þægilega aðkoma er á vatninu og er tilvalið fyrir fjölskylduna að skjótast í vatnið til veiða.
Reglur:
Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið.
Allur akstur utan vega og slóða er stranglega bannaður og verður slíkt athæfi kært til lögreglu. Veiðikortshafar sem valda umhverfisspjöllum eru ábyrgir gagnvart landeiganda.
Veiðiskýrslur er einnig hægt að sækja á vef Veiðikortsins og prenta út. Ef veiðist fiskur, sem er merktur Veiðimálastofnun, ber að geta þess í veiðiskýrslu.
Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
LÖG OG RÉTTUR VIÐ MEÐALFELLSVATN – UPPLÝSINGAR FRÁ WWW.KJOS.IS http://www.kjos.is/allar-frettir/nr/72056/
Uppá síðkastið hefur orðið vart nokkrar misklíðar varðandi framkvæmdir og umgengni við Meðalfellsvatn. Annarsvegar lítur ágreiningurinn að leyfisskyldum framkvæmdum við vatnið, sem gerðar hafa verið athugasemdir við og hinsvegar umgengni og rétt veiðimanna til að athafna sig við vatnið.
Vert er að minna á helstu reglur sem gilda varðandi ofangreint.
Meðalfellsvatn er á Náttúruminjaskrá og nýtur sérstakrar verndar. Í aðalskipulagi er 50 m. breið ræma umhverfis vatnið skilgreint sem “opið svæði” þar sem ekki er gert ráð fyrir mannvirkjagerð m.t.t. undantekningum.
Allar framkvæmdir við vatnið eru leyfisskildar til byggingar-og skipulagsyfirvalda í Kjósarhreppi samkvæmt skipulags-og byggingarlögum, lögum um lax og silungsveiði og náttúruverndarlögum. Gildir þar einu hvort um sé að ræða hverskonar byggingar eða röskun á fjöruborði með greftri eða efnisburði í vatnið og í fjöru þess.
Þá er rétt að árétta að öll lögmæt umferð gangandi manna er heimill umhverfis vatnið og óheimilt er að framkvæma nokkuð það sem hindrar slíka umferð. Þurfi að girða í vatn út, skal hlið eða stigi vera á girðingunni. Veiðimenn eru því í fullum rétti til veiða, hvort sem er á vatnsbakka framan við sumarhús eða hvarvetna annarstaðar.
Umferð ökutækja er hinsvegar óheimil utan hefðbundinna slóða og í fjöru vatnsins einsog hver annar utanvegaakstur.
{oziogallery 459}
{weather 9}
0 Comments