01. apr. 2011
Meðalfellsvatn – flott byrjun. Rólegt í Vífilsstaðavatni í morgun.
Í Meðalfellsvatni voru skilyrði orðin fín til veiða og veðrið gott. Cezary var þar í morgun en það var ekki margt um manninn og fékk hann þar 4 sjóbirtinga sem vógu 2-6 pund. Allir fengust þeir á koparlitaðann Toby spún.
Í Vífilsstaðavatni var rólegt í morgun. Hitastig var ekki nema 3° en þó voru nokkrir veiðimenn við veiðar og vissu menn af einni smábleikju sem hafði veiðst fyrir kl. 11.00.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem Cezary sendi okkur frá því í morgun úr Meðalfellsvatni. Þar fyrir neðan eru nokkrar myndir frá því í morgun úr Vífilsstaðavatni.
Myndirnar hér fyrir ofan eru frá Cezary síðan í morgun 1. apríl 2011.
Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir frá Vífilsstaðavatni síðan í morgun.
Það var hálf muggulegt í morgun við Vífilsstaðavatn
Við Vífilsstaðavatn í kaldri opnun!
Við þökkum Cezary fyrir myndirnar frá Meðalfellsvatni.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið.
0 Comments