Við kíktum í Elliðavatn í lok síðustu viku og hittum þar fyrir marga veiðimenn. Einn þeirra Aðalbjörn Sigurðsson er nýbyrjaður að stunda Elliðavatn og var í raun fyrst núna, síðla sumars, að náði almennilegri tengingu við vatnið. Hann var við veiðar fyrir innan Elliðavatnsbæinn við Myllulæk. Hann hafði veitt fallegan urriða þetta kvöld og við tókum hann tali og spurðum hann nánar út í fiskinn og Elliðavatnið. Hann hafði áhugaverða sögu að segja og hrósaði veiðimenningunni við vatnið.
„Urriðinn reyndist 59 cm langur og tæplega 2,5 kg. Hann tók Krókinn nr. 12 þar sem ég stóð út af Myllulæk í Elliðavatni. Ég var að nota um 10 feta taum. Næst flugulínunni er ég með 8 pund, hnýti við hann 6 punda taum og að lokum tæplega faðm af rúmlega fjögurra punda taumi. Mín reynsla af vatninu er að fiskurinn þar er vissulega taumstyggur og því nota ég svona samsetningu. Annað sem ég hef rekið mig á er að ég þarf oftar en ekki að kasta langt í vatninu á fisk sem er að vaka rétt við mörk þess sem ég næ til. Því nota ég yfirleitt sexu við veiðar í vatninu þó að í vatnaveiði kjósi ég yfirleitt léttari stangir."
Aðalbjörn með 59cm urriðinn sem hann veiddi á Krókinn við ósa Myllulækjar.
Aðalbjörn kastar flugunni fimlega í Elliðavatni fyrr í vikunni, þar sem hann fékk 2,5 kílóa urriðann.
0 Comments