Við greindum frá því í fréttapakkanum í gær að veiðimaður hafi kíkt í Hraunsfjörðinn. Við heyrðum í veiðimanninum sem heitir Guðmundur Aron Guðmundsson.
Hann er búinn að kíkja í Hraunsfjörðinn í tvígang og stoppað í um 1-2 tíma í hvort skipti. Í bæði skiptin hefur hann fengið tvær fínar bleikjur og hefur hann helst verið að fá þær á flugu sem heitir Héraeyra. Allir þessir fiskar tóku eftir að hann hafði séð bleikjur vaka og þá kastaði hann á þann stað og bingó! Bleikjan er í það minnsta mætt á svæðið þannig að það verður spennandi að fylgjast með næstu daga og vikur enda er fyrrihluti sumars góður tími í Hraunsfirði.
Hér fyrir neðan eru myndir frá Guðmundi og við þökkum honum fyrir upplýsingarnar og myndirnar.
Hér er Guðmundur með stærri bleikjuna sem hann fékk á Héraeyrað.
Hér er mynd bleikjunum sem hann fékk í annað skiptið. Feitar og fallegar og góður matfiskur!
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments