Ríkharður Hjálmarsson er sennilega með duglegri veiðimönnum og mikið á flakki um landið og nær því að prófa fleiri vatnasvæði á hverju ári heldur en marga dreymir um. Hann hefur þó haldið sig á suðvesturhorninu síðustu daga þar sem hálfgerður vetur ríkir víða um land.
Á sunnudegi fyrir viku síðan kíkti hann í Hlíðarvatnið og veitti þar mjög glæsilegar bleikjur og þar af eina boltableikju.
Falleg veiði úr Hlíðarvatni 4. maí 2008. Rík. Hjálm.
Á fimmtudaginn skellti Rikki sér í Laugarvatnið og nældi þar í þessar fallegu bleikjur:
Glæsileg veiði úr Laugarvatni 8. maí 2008. Rík.Hjálm.
Myndarleg þessi "kusa" ! Mynd Ríkharður Hjálmarsson
Eftir heimsóknina á Laugarvatn var kíkt á Þingvelli og þar var bleikjan lítið að sýna sig en menn voru að slíta upp einn og einn urriða. Á mynd fyrir neðan er veiðimaður á besta aldri, eða 85 ára, með glæsilegan urriða, en hann var að veiða á Þingvöllum í fyrsta skipti.
Það virðist eins og bleikjan sé í seinna lagi nú í ár sökum þess að búið er að vera frekar kalt miðað við á sama tíma í fyrra. Það má reikna með því að á næstu dögum fari hún að sýna sig í meira magni og munum við birta fréttir af því um leið og Þingvellir hrökkva í gang.
Þess ber að geta að hvorki Hlíðarvatn né Laugarvatn eru í Veiðikortinu þannig að þessi pistill valdi ekki misskilningi.
Mk,
Veiðikortið.
0 Comments