Lárus Óskar skellti sér í Vífilsstaðavatn í gærmorgun og fékk fína veiði og greinilegt að vatnið er vaknað af vetrardvala.
Hann hóf veiðar um kl. 11 og veiddi til kl. 14 og var hann sunnanmegin í vatninu á innsta tanganum. Hann fékk 8 bleikjur á þessum tíma og missti reyndar nokkrar. Fjórar komu á maðkinn, þrjár á Mubutu #14 með rauðum kraga og kúlu. Ein bleikja féll fyrir Pheasant Tail #14. Stærsta bleikjan var um 2,5 pund og hinar á bilinu 1-1,5 pund.
Við þökkum Lárusi Óskari kærlega fyrir upplýsingarnar sem og fyrir myndirnar sem sjá má hér fyrir neðan. Einnig má sjá nánari upplýsingar á http://zulu.123.is
Einnig viljum við nota tækifærið og óska veiðimönnum og öðrum gleðilegs sumars.
Fallegur afli sem Lárus Óskar fékk á 3 tímum í Vífilsstaðavatni síðasta morgun vetrar (20. apríl)
20. apríl við Vífilsstaðavatn
0 Comments