Það er enn nokkuð kalt á hálendinu en Árni Kristinn Skúlason og Jón Stefán Hannesson skelltu sér í Frostastaðavatn síðasta sunnudag til að kanna aðstæður.
Þar var hálf vetrarlegt um að lítast en þar var hvít jörð. Þeir slitu þó upp 10 fiska þrátt fyrir það á skömmum tíma.
Það verður spennandi að fylgjast með veiðiskap í vatninu þegar það fer að hlýna og aðstæður að batna.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið