Veiðikortið hefur samið við Veiðifélag Landmannaafréttar um að Frostastaðavatn að Fjallabaki verði með í Veiðikortinu 2021.
Frostastaðavatn er stærst vatnanna í vatnaklasanum sunnan Tungnaár. Um er að ræða frábært veiðivatn sem geymir óvenju mikið af silungi. Mest er þó af smábleikju en inn á milli eru vænir fiskar. Vatnið er því eins og sérhannað fyrir þá sem vilja fara með unga veiðimenn með mjög mikla veiðivon.
Góð ferðaþjónusta er í boði á hálendinu og geta veiðimenn og fjölskyldufólk pantað gistingu hjá ferðaþjónustunni Hellismenn (landmannahellir.is) sem og í Áfangagili (afangagil.is). Einnig geta veiðimenn keypt veiðileyfi í önnur veiðivötn á svæðinu, þar sem fjölmörg góð veiðivötn eru á svæðinu en Veiðikortið gildir aðeins í Frostastaðavatn. Veiðileyfi fást í Landmannahelli. Við mælum með að veiðimenn panti gistingu með góðum fyrirvara.
Til að komast að vatninu er nauðsynlegt að vera á jeppa eða amk fjórhjóladrifnum jeppling þar sem það þarf að fara yfir 2 lítil vöð.
Nánari upplýsingar um Frostastaðavatn má lesa á upplýsingasíðu vatnsins hér.
Við bjóðum Frostastaðavatn velkomið í vatnaflóru Veiðikortsins og vonum að korthafa kunni að meta þessa skemmtilegu viðbót.
Það er fallegt við Frostastaðavatn. Algengustu veiðistaðirnir eru neðan við bílastæðin og í og við hraunið. @sigurthor
Veiðimenn við Hraunið. Mikil veiði er í vatninu og er Frostastaðavatn kærkomin viðbót við vötnin í Veiðikortinu. @aks
Ef þú lumar á myndum úr vatninu máttu gjarnan senda okkur þær.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Nánari upplýsingar um Frostastaðavatn má finna á upplýsingasíðu okkar um vatnið:
0 Comments