Veiðikortið 2016 er komið í dreifingu og ætti að vera komið á flesta sölustaði á höfuðborgarsvæðinu og ætti kortið að vera að berast á sölustaði á landsbyggðinni næstu daga.
Hér fyrir neðan er mynd af forsíðu bæklingsins sem fylgir kortinu í ár og með því að smella á myndina getur þú skoðað bæklinginn í vefútgáfu. Myndin á forsíðunni er tekin af ungum veiðidömum sem voru við veiðar í Elliðavatni (Helluvatni) á fallegum sumardegi ásamt fjölskyldu sinni.
Njótið vel!
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments