Það er búið að vera fín veiði í sumar í Þveit. Menn hafa verið að fá mest af urriða, sjóbirting og meira að segja töluvert af álum hafa veiðst. Margir urriða í kringum 4-5 pundin hafa komið á land. Töluvert af sjóbirting gengur í Þveit og er því hægt að veiða þarna eitthvað inn í haustið, en veiði er leyfð til 30. september.
Óvanalega mikið hefur veiðst af áli í sumar. Aðallega hefur hann tekið hjá þeim sem hafa beitt makríl.
Ef þú ert á austurleið mælum við með að þú kíkir við í Þveit sem er rétt við þjóðveginn.
Einnig er búið að vera fín veiði í Víkurflóði við Kirkjubæjarklaustu en þar er einnig hægt að veiða sjóbirting í bland við staðbundinn fisk. Þar má einnig leigja smáhýsi eða hótelherbergi.
0 Comments