Margir veiðimenn hafa sótt vötnin síðan sum þeirra opnuðu 1. apríl. Flestar hafa reynt fyrir sér í Vífilsstaðavatni og Meðalfellsvatni. Einnig er rétt að benda mönnum á að Kleifarvatn opnar í dag.
Cezary skellti sér í Meðalfellsvatnið 13. apríl og fékk tvo 7 punda fiska, annar staðbundinn urriði en hinn sjógengið.
Skemmtileg tilviljun að þeir voru nánast jafn stórir og fengust á koparlitaðan Toby.
Hér er mynd af urriðanum og sjóbirtingnum sem voru nánast jafnstórir. Þeir tóku koparlitaðan Toby.
Leszek Robert og Tomas félagi hans fóru í Meðalfellsvatn 4. apríl, síðdegis og fengu þeir flottan 4 punda sjóbirting og flottan urriða. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þeim.
Tomas með fallegan sjóbirting.
Flottur fiskur
Hér er 4 punda sjóbirtingurinn og urriðinn sem fékkst 4. apríl í Meðalfellsvatni
Tommi í Veiðiportinu fór sinn árlega vatnahring í vötnin í kring og fékk vægast sagt glæsilega veiði.
Flott urriðaveiði úr Gíslholtsvatni sem er þó ekki inn í Veiðikortinu.
Svakalega vel haldnar "kusur" sem Tommi fékk í byrjun apríl. Á veiðiboxinu má sjá hvaða flugur eru að gefa vel á bleikjuveiðum.
Einnig má lesa um það á veiðivefnum www.veidi.is að menn hafi verið að fá óvenju stórar bleikjur í Vífilsstaðavatni, en algent er að þær séu 45-50 cm og rúm. Einn veiðimaðurinn fékk t.d. 48cm fisk í fyrradag sem vó rétt tæpt 1,5 kg eða 3 pund! Það er frábært að geta skotist í veiði á höfuðborgarsvæðinu og von á fínum bleikjum.
Við þökkum veiðimönnunum kærlega fyrir að miðla með okkur myndunum.
Hlökkum til að fá fréttir úr Kleifarvatni á Reykjanesi í dag.
Veiðikveðja,
Veiðikortið
0 Comments