Staðsetning:
Hnit: 64° 59.212'N, 14° 36.870'W

Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 10:00 til 22:00.

Veiðitímabil
Hefst 1. maí og lýkur 30. september.

Haugatjarnir - Austuland

Haugatjarnir eru í Skriðdal

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Frá Reykjavík eru um 650 km. og um 35 km. til Egilsstaða.  Tjarnirnar eru við bæinn Hauga sem stendur við þjóðveg 95.

Upplýsingar um vatnið

Um er að ræða tvær tjarnir, sem eru mjög hentugar  fyrir fjölskyldur.  Þær eru ekki stórar en mjög aðgengilegar. Þar er mikið af fiski og því sérstaklega skemmtilegar fyrir ungu kynslóðina.  Mikið og gott berjaland er í nágrenninu

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Haugatjarnir

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiði er heimil í báðum tjörnunum.

Gisting

Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu.

Veiði

Einungis urriði veiðist í tjörnunum.

Agn

Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn

Góð veiði er allt sumarið.

Annað

Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.

Reglur

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Hugrúnu Sveinsdóttur á Haugum.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt.

Veiðivörður

Hugrún Sveinsdóttir, Haugum, s: 892-7813