Við heyrðum í írska veiðimanninum Michael Murphy sem er orðinn fastagestur hér á landi, en hann veiðir mikið í kringum Hraunsfjörð. Hann og félagi hans, Iain Muir frá Achiltibuie í Skotlandi, eru búnir að vera síðustu daga í Hraunsfirði og Baulárvallavatni en ákváðu að prufa Haukadalsvatnið í gær. Á skömmum tíma fengu þeir um 10 bleikjur sem voru þó frekar smáar en þeir ætla að veiða þar betur í dag.
Haukadalsvatn er gott síðsumarsvatn, enda uppistaðan í veiðinni þar sjóbleikja.
Hér fyrir neðan er mynd af Iain Muir með fyrstu sjóbleikjuna sína sem hann fékk í Haukadalsvatni í gær.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments