Stökkvandi fiskar, frábært veður
Stökkvandi fiskar, frábært veður og bullandi veiði. Meðalfellsvatn 20. apríl !
Það er búið að vera líf og fjör við Meðalfellsvatn í dag. Nokkrir fallegir sjóbirtingar hafa fengist í dag. Það eru góðar fréttir að menn séu að fá fallega sjóbirtinga á þessum tíma. Einnig hefur veiðst mikið af hoplaxi sem var að sjálfsögðu sleppt. Urriðinn hefur verið duglegur að taka.