Kleifarvatn – Glæsileg veiði.
Það eru fallegir fiskar í Kleifarvatni og talsvert borið á því síðustu daga. Cezary og Michal eru búnir að vera duglegir að stunda Kleifarvatn í sumar sem og önnur vötn. Síðustu 7 daga eru þeir búnir að fara 4 sinnum og fá 35 stórfiska, 8-12 punda urriða. Einnig fengu þeir fína fiska þar fyrr í sumar. Bleikjan er einnig mjög væn í Kleifarvatni og hafa þeir verið að fá talsvert af bleikju líka.