Lokaútkall fyrir nokkur vatnasvæði!
Í dag, 15. september, er síðasti veiðidagurinn í mörgum vinsælum veiðivötnum eins og Þingvallavatni, Elliðavatni, Vífilsstaðavatni og Frostastaðavatni. Það er því um að gera fyrir veiðimenn að kíkja í veiði í dag áður en haustið skellur á. Búið er að vera fín veiði í Elliðavatni í allt sumar og mikið af urriða að sýna sig. Einnig hefur urriðaveiðin verið fín í Þingvallavatni en bleikjuveiðinþar frekar látið á sér standa.
Við viljum nota tækifærið og minna veiðimenn á að skrá veidda fiska í sumar hér: https://veidikortid.is/veidiskraning/
Daníel Karl Egilsson fór í Þingvallavatn í fyrrakvöld og fékk þennan væna urriða rétt undir myrkur!
Með kveðju,
Veiðikortið
Veiðitúr á Skagaheiði – enn hægt að leigja hús
Skagaheiðin í landi Hvalness er vinsæll áfangastaður veiðimanna og jafnan góð veiði. Hægt er að veiða í 7 veiðivötnum og lækjum sem renna á milli vatnanna. Það er búið að vera fín veiði þar í sumar.
Einnig er hægt að leigja veiðihús við vatnið en tvö hús eru við Ölvesvatn þar sem er gisting er fyrir 6-8 manns. Við heyrum í Bjarna í Hvalnesi fyrir skömmu og þá var enn hægt að komast að í húsunum. Þeir sem vilja tryggja sér leigu eða kanna með lausa daga er bent á að hafa beint samband við Bjarna Egilsson, í síma 893-7756 eða með því að senda tölvupóst á hvalnes730@simnet.is
Það er góður tími á heiðinni að nálgast en þegar líður á sumarið fer fiskurinn í meira mæli í lækina á milli vatnanna þar sem gaman er að egna fyrir þá með þurrflugu eða púpum.
Við vekjum athygli á því að á vatnasvæðið er takmarkaður fjöldi stanga, þannig að nauðsynlegt er að skrá komu sína áður en veiðimenn mæta á svæðið.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Veiðibrot í Hraunsfirði
Veiðibrot í Hraunsfirði
Við eftirlit í Hraunsfirði í dag varð veiðimaður uppvís að broti á veiðireglum, en um var að ræða netalögn sem veiðimaður hafði lagt í lónið. Þegar var haft samband við lögreglu sem fór í málið. Brot sem þetta verða ekki liðin í firðinum og mun svæðið vera undir auknu eftirliti hvað þetta varðar það sem eftir lifir sumars, en netalögnin sást úr eftirlitsflugi sem farið var yfir fjörðinn. Þess bera að geta að til staðar er eftirlit, bæði af hálfu veiðieftirlitsmanna sem og úr drónum og úr flugi. Svona brot eru ákaflega sjaldgæf, sem betur er. Verði veiðimenn varir við brot af þessum toga, biðjum við þá að standa með okkur og láta vita þegar í stað.
Hafið þá samband við Bjarna Júlíusson, veiðieftirlitsmann á svæðinu, í síma 693-0461 og brugðist verður við af fullum þunga.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Frábært byrjun í vatnaveiðinni!
Vatnaveiðin hefur farið vel af stað eins og veiðimenn hafa eflaust séð sem fylgja okkur á Facebook og Instagram. Þar reynum við að póst fréttum þegar þær gerast.
Elliðavatnið hefur sjaldan verið einn gjöfult í maí, a.m.k. síðustu árin. Veiðimenn hafa verið að fá marga urriða um og yfir 50 cm. Nýlega fór bleikjan að sýna sig er hún í sérstaklega góðum holdum.
Bleikjan er að vakna í Þingvallavatni, en urriðaveiðin þar hefur oft verið betri, þó svo þeir sem þekkja vel til hafa verið að fá einn og einn risaurriða. Það verður spennandi að fara í vatnið á næstu dögum og eldast við bleikjuna, en hún er mjög væn, sérstaklega þessar fyrstu sem mæta á svæðið. Einnig höfum við heyrt af veiðimönnum gera fína veiði í Úlfljótsvatni.
Kuldu og leysingar hafa orðið til þess að jafnan er meira vatn og kaldara í flestum ám og vötnum. Hraunsfjörður er þar engin undantekning, en þar virðist veiðin vera að fara eitthvað seinna í gang. Það má reikna með að veiðimenn eigi eftir að gera gott mót þar á næstunni og við fylgjumst vel með gangi mála þar.
Við viljum minna veiðimenn á að skrá allan veiddan fisk á vefsíðunni okkar, veidikortdi.is/veidiskraning og endilega sendið okkur fréttir og myndir til að deila gleðinni með öðrum veiðimönnum. Einnig mælum við með að þú notir myllumerkið #veiðikortið þegar þú póstar þínum veiðiminningum á Instagram.
Vatnaveiðin er rétt að byrja! Góða skemmun!
Hér fyrir neðan er mynd frá Óskari Arnarsyni sem fékk þessa fallegu bleikju á Þingvöllum í vikunni og til hægri er mynd frá Daníel Egilssyni með veiði úr Elliðavatni fyrir örfáum dögum.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Risadagur í dag, 1. maí
Þeir eru margir veiðimennirnir sem horfa á 1. maí sem fyrsta veiðidaginn og byrja ekkert að veiða fyrr en sá dagur rennur upp.
Vorið hefur verið mjög hlýtt og gott og við höfum orðið vitni að snemmbúnu flugnaklaki síðustu daga. Veiðin hefur gengið mjög vel í þeim vötnum sem þegar hafa opnað fyrir veiði. Þá má því ætla að það sé langt síðan sumarið hafi farið jafn vel af stað og í ár.
Það eru fjölmörg vötn í Veiðikortinu sem opna ekki fyrir veiði fyrr en 1. maí en fyrir neðan er listi yfir þau vötn:
Vötn sem opna í maí
Vatn | Opnar | Lokar |
---|---|---|
Arnarvatn á Melrakkasléttu | 1.maí | 30.sep |
Haugatjarnir í Skriðdal | 1.maí | 30.sep |
Haukadalsvatn í Haukadal | 1.maí | 30.sep |
Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu | 1.maí | 30.sep |
Kleifarvatn í Breiðdal | 1.maí | 30.sep |
Laxárvatn | 1.maí | 30.sep |
Mjóavatn í Breiðdal | 1.maí | 30.sep |
Sléttuhlíðarvatn í landi Hrauns | 1.maí | 20.sep |
Sænautavatn á Jökuldalsheiði | 1.maí | 20.sep |
Úlfljótsvatn – Vesturbakkinn | 1.maí | 30.sep |
Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði | 1.maí | 20.sep |
Æðarvatn á Melrakkasléttu | 1.maí | 30.sep |
Einnig viljum við minna veiðimenn á að skrá allan afla rafrænt með því að fara á vefslóðina: veidikortid.is/veidiskraning
Kæru veiðimenn, vonandi eigið þið góðan dag við vötnin á þessum baráttudegi verkalýðsins.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Elliðavatn opnar fyrir veiði á morgun – sumardaginn fyrsta!
Sumarið er að bresta á og veiðimenn fagna sumri í Elliðavatni á morgun, sumardaginn fyrsta.
Það er fín veðurspá fyrir morgundaginn, léttskýjað með hugsanlegum dropum seinnipartinn og hiti frá 7-13° yfir daginn. Þetta ættu að vera kjöraðstæður fyrir veiðiskap og því tilvalið að fjölmenna og fagna sumarkomunni við Elliðavatnið.
Minnum veiðimenn á vinsamleg tilmæli um að sleppa aftur veiddum laxi í sumar og að sjálfsögðu er mjög mikilvægt að sleppa niðurgöngulaxi (hoplaxi) sem gæti veiðst í vatninu í apríl en hægt er að þekkja þá að því að þeir eru jafnan mjög grannir.
Einnig viljum við minna á að aðeins er heimilt að veiða í Hólmsá á flugu og veiðibann er í Suðurá sem rennur út í Helluvatn.
Hér fyrir ofan er mynd af Ásgeiri, syni hans og Aðalsteini en þeir hafa jafnan verið mættir fyrstir á bakkann við opnun og oftast fengið fyrsta fiskinn úr vatninu ár hvert. Í fyrra var frekar kalt á sumardaginn fyrsta og fáir veiðimenn við veiðar. Það má búast við mun fleiri veiðimönnum á morgun enda veðurspáin mjög góð.
Hér er hlekkur á upplýsingasíðu vatnsins.
Hér er hlekkur á veiðiskráninguna.
Þeir sem eru ekki ætla að kaupa Veiðikortið geta keypt stakan dag hér.
Gleðilegt sumar!
Veiðikortið
Þingvallavatn opnar fyrir fluguveiði á morgun!
Á morgun, 20. apríl hefst formlega fluguveiðitímabilið í þjóðgarðinum en það stendur yfir frá 20. apríl – 1. júní. Aðeins er heimilt að veiða með flugu og með flugustöng auk þess sem öllum veiddum urriða skal sleppt aftur. Það er því ekki heimilt að veiða í þjóðgarðinum með kaststöng fyrr en 1. júní.
Vorveiðin í Þingvallavatni er einn besti tíminn í vatninu til að reyna við stórurriðann sem getur verið allt að 20 pund að þyngd auk þess sem sílableikjan fer á stjá á þessum tíma.
Ath. að gróður er viðkvæmur á þessum tíma og við biðlum til veiðimanna að ganga vel um svæðið.
Við minnum veiðimenn á rafræna veiðiskráningu sem þú getur skrá með því að smella hér.
Einnig viljum við minna á Þingvallabæklinginn sem gefinn var út af Arkó og Nielsen veiðivörum fyrir allmörgum árum en hefur að geyma gagnlegar upplýsingar um veiði og veiðistaði í vatninu.
Góða skemmtun!
Veiðikortið
Meðalfellsvatn opnaði fyrir veiði í dag!
Í dag opnaði formlega fyrir veiði í Meðalfellsvatni. Vatnið er mjög þægilegt fyrir fjölskyldufólk enda aðkoma góð, stutt frá höfuðborgarsvæðinu og veiðilíkur fínar. Margir veiðimenn sækja í vatnið snemmsumars enda veiðist talsvert af vænum fiskum þá.
Við viljum þó hvetja menn til að drepa ekki niðurgöngufiska og á það jafnt við um hoplax og sjóbirtinga á leið til sjávar. Þannig að ef að þú veiðir mjög grannan fisk, eru allar líkur á því að um niðurgöngufisk er að ræða og hann hentar ekki vel til átu.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Meðalfellsvatnið.
Með kveðju,
Veiðikortið
Kleifarvatn á Reykjanesi opnar fyrir veiði
Í dag, 15. apríl, opnar fyrir veiði í Kleifarvatn á Reykjanesi. Það er algengt að stórurriðinn í vatninu taki einna best á vorin og má því gera ráð fyrir því að einhverjir séu orðnir spenntir að kíkja í vatnið.
Vötnin í Veiðikortinu opna svo eitt af öðru næstu daga, en í næstu viku opnar til að mynda fyrir veiði í Meðalfellsvatni, Elliðavatni og Þingvallavatni.
Gleðilega páska og við hvetjum veiðimenn til að póst myndum á samfélagsmiðla með myllumerkinu #veiðikortið auk þess sem við minnum á veiðiskráninguna.
Hér fyrir neðan er mynd af Adrian Mazik sem fékk þennan 68 sm urriða í Kleifarvatni í maí í fyrra.
Hér fyrir neðan er hlekkur í upplýsingasíðuna fyrir Kleifarvatn þar sem má skoða fleiri myndir, reglur og fleira sem tengist vatninu.
Með páskakveðju,
Veiðikortið